20080202

26:58

Eingungis höndur í gær, síðustu 100 af hverjum km með öfugt tak.

20080201

Danskar fyrirsagnir

Obama er mest venstreorienteret

Jagten på Britney er ude af kontrol

Bankansatte skal overvåge kunder

Hver sjette københavner er fattig

Nedtællingen er i fuld gang til Super Bowl

20080130

20 km komnir 180 eftir

Tók 5 km á 22 mínútum sléttum. Var í nettri keppni við gaurinn við hliðina, við byrjuðum á sama tíma og ég náði 100 metra forskoti á fyrstu 500 metrunum og hélt því allt til enda. Var reyndar kominn með 170 metra forskot í blárestina.

Þetta voru víst 300 kaloríur samkvæmt vélinni

20080128

Facebook rugl

Prófessorarnir í CBS halda að Facebook sé álið. Þeir nota Facebook sem dæmi um hvernig internetið og samskipti manna þróast með tilkomu nýrrar tækni.

Umræðan í frímínútum(:)) snerist að miklu leyti um hversu ofmetið fyrirbærið er og hversu mikil upplýsingamengun er í gangi á Facebook. Fyrst höfum við "Wall" svo "SuperWall" svo "FunWall" svo "Poke", "SuperPoke" og "FunPoke. Að ekki sé talað um hina endalausu getraunir, ruslpóst sem fólk sendir (sendu þetta og 6 evrur fara til Unicef), einnig allskyns ófreskjur sem ráðast á aðra og svo er jafnvel hægt að kaupa vini annarra og bjóða fólki uppá rosalegt fyllerí.

Ég hef spáð fyrir um dauða Facebook og held mig við þann spádóm. Ofmetið ferlíki sem mun á endanum verða eins og gömlu "blogspot" heimasíðurnar:)

Atli



Hann er svo sætur

Annað slagið Rækt

Fórum í tíma í gær, tókum 5km á róðrartækinu.

Af markmiði mínu fyrir 1. maí (200km) er ég kominn með 15 km.
Fyrsta skiptið eftir áramót 23:37
Annað skiptið 22:57
Þriðja skiptið, fætur fastir einungis hendur notaðar 26:37.

Það verða reglulegar uppfærslur eftir því sem ég mæti í ræktina.

20080117

Grasekkill

Næstu dagana verð ég aleinn hér á Fogedgården, Bryndís komin til föðurlandsins enn á ný.

Við Sabbi munduðum eldhúsið og steiktum borgara áðan, beikon til hliðar og alíslensk hamborgarasósa yfir það heila.

20080110

Bandaríkin

Eftir að skóla sleppir í sumar hefst Bandaríkjaferðin. Ferð sem mun teygja anga sína eins víða og hægt er á einu sumri án þess að sleppa afslappelsi á ströndum landsins.

Stúfur gaf okkur ferðahandbók um helstu staði sem aðrir ferðalangar hafa mælt með á þessu víðfema svæði. Næsti mánuður eða svo fer í að plana smáatriðin varðandi hvaða borgir skal skoða, hvaða sveitir skal skoða, hvaða frægu staði skal skoða og hvaða fólk skal tala við og umgangast.



Svo náum við vonandi að sjá endurgerð af helstu orrustum Þrælastríðsins.



Meira seinna

Hvít Jól



Fengum hvít jól í ferðinni til föðurlandsins. Fengum líka allskyns góðgæti að borða og þökkum við kærlega fyrir það.

Danir eru búnir að taka niður allt jólaskrautið, voru reyndar ekki búnir að setja það upp þegar við fórum 20. des. Ég held uppi jólaskreytingum okkar enn um sinn, enda talsvert myrkur enn um sinn hér hjá Baunum.

Það fer reyndar að styttast svolítið í vorið og sumarið, hlakkar til:)

20071220

Ferð



Við erum á leiðinni heim í útlandaferð:) Jibbý



Sjáumst í Keflavík

20071217

Hvernig á að fallbeygja kýr?

ET: Hér er kýr um kú frá kú til kýr.
FT: Hér eru kýr um kýr frá kúm til kúa.

20071209

Ferðalög fyrirmenna

Eftir nokkra daga höldum við heim á leið, munum taka með okkur 2 ferðatöskur, veski og síma. Með í ferðinni verða 2 kokkar og einn lífvörður. Tækin með í för eru lest, breiðþota og nokkrir einkabílar hér og þar við ýmis tilefni.

Ekki alveg Forseti Bandaríkjanna, en...

20071208

I love you inside Ed




Lagið okkar Thelmu Hrannar ;)
Við munum frumsýna það á öldum ljósvakans innan fárra ára..

20071207

Hundur eða köttur?



Var á netinu að skoða myndir af hundum og köttum, smá rannsóknarvinna fyrir framtíðina, og þá fann ég þennan.. er ekki viss hvað þetta er, vitið þið það?

20071206

Tölvuleikir

Búinn að vera mjög áhugasamur um þennan leik http://leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=1212 eftir að ég fór yfirum í Warlords 2.

Ég virðist ekki hafa náð að þroskast yfir á þrívíða leiki, ég er enn fastur í þeim tvívíðu.

Söngleikjamyndir

Öðlaðist neitunarvald á söngleikjamyndir í gær.

20071205

Shawarma

Gat illa sofnað í gærkveldi þar sem ég var svo mikið að hugsa um nýfengna hugmynd mína um að búa til Kebab. Fór meiraðsegja í tölvuna til að gera réttu kryddblönduna.

Svo í morgun verslaði ég ost, gular baunir og jógúrt. Steikti kjúkling og bætti við kryddblöndunni, lyktin var eins og á Purble Onion í gamla daga.

Gerði plattann og sósuna, kryddaði hvern bita og át og át og át...

Í óðagotinu gleymdi ég að taka mynd en þið getið farið á Habibi (þ.e. þegar hann opnar aftur eftir endurbætur á húsinu sínu) og séð alvöru platta.

Aaaah hvað þetta var gott, held ég geri þetta aftur á morgun. Jafnvel geri mitt eigið brauð í þetta skipti, Hjemmelevet.

Og ykkur til upplýsinga þá er mjög lítið um aðra skyndibitastaði en Kebab staði að ræða í Kóngsins Kaupmannahöfn. Einstaka Pylsusalar niðrí bæ en þess utan eru það Kebab staðirnir sem eiga vinninginn, enda ekki skrýtið.

20071204

Ný frétt

Oral Exam á mánudaginn, best að byrja að hætta að slóra og klára skólann svo maður komist í langþráð frí.

20071202

Afmæli


Við eigum afmæl'í dag, við eigum afmæl'Í DAG!!!

VEIII!!

Í dag á samband okkar Jóns eins og hálfs árs afmæli, sem þýðir að það er byrjað að tala og hætt að ganga með bleyju :D
Við ætluðum að halda upp á það, en Jón þarf að fara á fótboltaleik... ;)

Viva la romance!

20071201

STOP

Var að velta því fyrir mér meðan ég var í strætó áðan hvort það: að giska hvenær ýtt verður á stop takkan sé hið óvænta sem strætóbílstjórar bíða eftir meðan þeir vinna?

Annars labbaði ég Strikið í dag, hitti engann sem ég þekki þrátt fyrir almenna íslensku hér og þar.