20081129

128 eftir

Jæja þetta gengur hægt, 10 km á dag er hámarkið ef maður ætlar að halda stöðugleikanum í ferlinu.

20081122

352

Bara 148 kílómetrar eftir til áramóta, reyndar hef ég bara til 23. des þar til maður fer í flug heim.


Þetta hefst ef ég fer annan hvern dag og tek 10 km í hvert skipti

20081102

Hjálmar á hausa


Þar sem við viljum vernda hausinn í hjólaumferðinni í Köben, höfum við nú keypt okkur hjólreiðahjálma. Tókum upp þetta video eftir kaupin, sjáiði bara hvað Bryndís er ánægð:)


Nú getur maður farið yfir á rauðu og svínað á allt og alla án þess að hafa áhyggjur, bara æpa nokkur vel valin dönsk blótsyrði á Baunana þegar þeir reyna að laga hegðunina.

Nei við hegðum okkur:)

Ég tók líka upp 360° af sjálfum mér.