20071122

Tap

Fórum á Ísland - Danmörk í gær. Mikil vonbrigði.
Töpuðum 3-0, og ekki nóg með að maður þurfti að horfa upp á það, heldur var ískalt í stúkunni allan tíman.
Ég gat ekki beðið eftir að komast heim og fara undir sæng, vaknaði rám og kvefuð, frábært.

Ljós punktur á deginum er að það er tæplega mánuður þangað til við komum heim! :D

Nú er bara að læra og læra og læra fyrir prófin og svo home sweet home!!!

Vei!

20071120

Sprungið

Það sprakk!



Reyndar ekki með látum, en afturdekkið mitt er lofttómt. Fór með það í þriðja skipti í Júpíter til að láta laga. Vona þeir nái að redda þessu í þetta skipti.

En ámeðan við tölum um svona dekkjavandamál þá fyrir ekki svo löngu síðan lenti ég í atviki, atvik sem kemur Mözdunni minni 323F við. Ég var um morguninn 17. júní árið 2004 á leiðinni að vestan, þegar...

Sá dekkið skoppa
Mér við hlið
Mölin sá um að stoppa
Ég heyrði bara nið

Steig útúr bílnum
Dekkið skrapp í móann
sá eftir bremsudílnum
Settist hjá mér lóann




Það sem gerðist semsagt var að vinstra framdekkið fór undan bílnum, þá samdi ég þetta ljóð. Varðandi Bremsudílinn þá hafði ég nýverið látið skipta um bremsuborða og mennirnir höfðu ekki fest nógu vel:(

20071119

Bubbi

Fór á Bubba á föstudaginn, algjör snilld.

...Verð samt að viðurkenna að mér finnst hann orðinn heldur meyr kallinn.. Þrátt fyrir að hann hafi tekið nokkra af gömlu snilldarslögurunum, þá hékk hann alveg í nýju lögunum um sólkjóla og brún augu og blá augu og svo fram eftir götunum.

Rómeó og Júlía björguðu samt kvöldinu, hallelúja!

Núna er bara mánuður í heimferð :-D

20071116

Sitting on a duck

Hersla

Vorum að hersla upp síðuna okkar, völdum annað af hinum 20 útlitum sem Blogger bíður uppá.

Hope you like it. Fengum okkur piparsteik í kvöld, Bryndís gerði ljúffenga rauðvínssósu. Smakkaðist mjög vel.

20071113

They Suck trailer

Myndin sem á eftir að gera Bryndísi fræga...



Hún leikur vampírubana sem á eftir á drepa ógeðslega margar vampírur með trékrossinum og silfurkúlunum sínum. Sá hana um daginn bræða í full metal jacket áður en hún fór út eitt kvöldið, þær eru víst svaðalegar vampírurnar í Baunalandinu.

Publish

Cocorosie

Við erum að fara á tónleika.

Af því skjárinn á símanum mínum er hálfursvartur veit ég ekki hvaða hljómsveit við erum að fara á en giska á það sé þessi.



Góður skítur

20071111

Nýklipptur




Við keyptum okkur þetta líka killer sett af hárrakstursvörum um daginn.

Hárrakvél, skæri, greiða, you name it.


Ég fékk því að klippa Jón af því tilefni ;)


Sjá afraksturinn hér að ofan!


Baka



Bakaði böku í fyrradag, hún var algjört gúmmelaði.
Baka er alveg frábært konsept, maður getur notað eiginlega allt sem maður á til í ísskápnum.
Þannig að ef þú átt egg og mjólk þá er bara að skvetta degi í bökuform og setja allt tiltækt ofan í, sveppi, brokkolí, tómata, spínat, ost, rækjur............................................ anything.......

Jólasnjórinn

séð frá glugganum okkar





Snjór

Það er byrjað að snjóa í Danmörku.

Fyrsti snjórinn féll rétt áðan í takt við þrumur og eldingar.



Það verður gaman að ferðast um í fyrramálið.

20071110

Ekki sjóða egg í örbylgjuofni!!!

Þessum góðráði kynntist ég áðan.

Ég varð svöng, langaði í smá nart, ákvað að fá mér linsoðið egg, en nennti ekki að setja vatn í pott og bíða eftir að það soðnaði.
Þannig að ég setti eggið bara í skál með vatni, og inn í örbylgjuofn á 4,5 mínútur.
Þegar þær mínútur voru úti kallaði ég á Jón og spurði hversu lengi maður væri aftur að linsjóða egg, "6-8 mínútur" sagði hann. Ók, hugsaði ég með mér, ég set þær þá á 1,5 mínútur í viðbót.

Þetta kann að hafa bjargað andliti mínu.

Þegar sekúndurnar töldu niður "9...8...7...6.." þá var ég orðin svo svöng að ég lá nánast með andlitið á örbylgjuhurðinni, allt í einu leit ég samt upp, og þá "...1..0..." sprakk hurðin upp!!
Þúsund hlutir flugu í gegnum höfuðið á mér, ég hélt að ég hefði sprengt örbylgjuofninn upp og hurðin væri flogin af.. en sem betur fer var eggið það eina sem hafði sprungið, það voru eggjaslettur upp um alla veggi.

Nú erum við búin að þrífa.
Ég er ennþá svöng...namm, ætti ég að fá mér egg??

20071109

Rok

Það er loksins kominn smá íslenskur kaldi hingað í Baunaland. Lægðin sem á að leggja Holland í rúst hefur fretað smá í áttina.



Endilega skoðið sjálf. Svo mæli ég með því að fólk skoði Google fréttaveituna.

Davíð og Golíat


Læra læra læra

Nú er bara rétt rúmur mánuður eftir af kennslu og ég er farin að stressast.

Stærðfræðikennarinn minn er að fara á taugum því við eigum svo mikið eftir og honum finnst bókin alveg ómöguleg og fólkið sem gerir prófin algjörir bjánar.
Þannig að ekki eingöngu er hann að staglast á því að við náum örugglega aldrei að fara yfir allt fyrir prófið, heldur vill hann ekki kenna okkur aðferðirnar í bókinni, heldur "sínar" reglur... mjög traustvekjandi.

Ég er dáldið hrædd um að þetta sé eins og spænskukennari væri að kenna manni ítölsku fyrir próf. Ég sem hélt að stærðfræði væri eina alþjóðlega tungumálið...

Í gær setti hann svo rjómann á kökuna þegar hann sagði að ef við lærðum ógeðslega mikið þá ættum við alveg að geta fengið 6 á prófinu (þ.e. 5 á íslensku).
Vá, frábært.

Ég ætla að halda áfram að læra.

20071107

Vindaborgin

Thad er mjøg vindasamt i dag, innandyra sem utan.

...Ætli maturinn hafi eitthvad ad gera med thad?


Hvada vindagangur ætli sé ad feykja thessari dømu?

20071106

Tedrykkur

Við bjuggum til nýjan uppáhaldsdrykk eftir að við fluttum hingað út.
Hann er allt í senn, góður, frískandi og hreinsandi.
Eftir því sem ég eyði meiri tíma í stofunni yfir bókunum þá fjölgar lítrunum sem ég innbyrði af þessum svokalla Tedrykk.





Hann er mjög einfaldur og fljótgerður:

1 bolli grænt te (set oft ávaxtate með í bollann)
1/2 lime kreist
1/2 appelsína
Klakar
Ískalt vatn


Síðan má bæta við eins mikið af ávöxtum eða mismunandi te eins og hver vill.
-Þetta gerir uþb 1-1,5 lítra af drykk, eftir styrkleika.
Það er æðislegt að setja hnetublöndu í litla skál til að narta í með þessu (t.d hesli-og pekanhnetur).

20071105

FlowerPower

"I'll make him an offer he can't refuse"

Við höfum verið að njóta afraksturs afmæliss Jóns síðustu vikuna.

Hann fékk nefninlega algjörar snilldar gjafir.
Frá mér fékk hann m.a. fyrstu seríuna af ROME... sem við gúlpuðum í okkur á rúmum sólarhring :-S
Síðan fékk hann frá systur sinni og mági Godfather trílógíuna - og VÁÁ! Horfðum á tvær þeirra yfir helgina (með dags millibili, tók ekki brjálæðið á þetta eins og með Rome) og þær eru rosalegar.

Beatrice Kiddo - farðu í aftursætið, því Don Vito Corleone (Marlon Brando) er án alls vafa svalasti karakter kvikmyndasögunnar og Robert DeNiro gefur honum ekkert eftir sem Vito á yngri árum. Michael Corleone fylgir þar fast á eftir, alveg ííískaldur !

"...I'll make him an offer he can't refuse"

Svona nú - Skundastu á leigurnar!

20071103

Baby's famous!

Kvikmyndagerðasnillingurinn Erlingur Thoroddsen er búinn að setja trailerinn fyrir nýju hrollvekjustuttmyndina sína " They Suck" á Youtube.
McBibbs leikur þar vampýrubana, reyndar svo vel að ég er nú í viðræðum við WB um að leika Buffy í næstu seríu... I'll keep you posted ;)

Skoðið trailerinn hér
http://www.youtube.com/watch?v=IUewKzuJiJY


Luv.. Baby McBibbs