20081129

128 eftir

Jæja þetta gengur hægt, 10 km á dag er hámarkið ef maður ætlar að halda stöðugleikanum í ferlinu.

20081122

352

Bara 148 kílómetrar eftir til áramóta, reyndar hef ég bara til 23. des þar til maður fer í flug heim.


Þetta hefst ef ég fer annan hvern dag og tek 10 km í hvert skipti

20081102

Hjálmar á hausa


Þar sem við viljum vernda hausinn í hjólaumferðinni í Köben, höfum við nú keypt okkur hjólreiðahjálma. Tókum upp þetta video eftir kaupin, sjáiði bara hvað Bryndís er ánægð:)


Nú getur maður farið yfir á rauðu og svínað á allt og alla án þess að hafa áhyggjur, bara æpa nokkur vel valin dönsk blótsyrði á Baunana þegar þeir reyna að laga hegðunina.

Nei við hegðum okkur:)

Ég tók líka upp 360° af sjálfum mér.

20081022

Kebab





Kebab

Ég og Binni tókum shawarma fyrir FCK leik um daginn. Það var mesta snilld, eins og sést á fjölda krydda var þetta sterka gerðin.

Að sjálfssögðu vorum við í FCK búningum á meðan.


20081020

Harður bransi



Bryndís bauð mér í Tívolíið á ljósanótt, fékk þetta í gegnum fínu vinnuna sína hjá E&Y. Við skemmtum okkur eins og kóngar, sjá mynd með slik í munni:)

Já lífið gengur sinn vanagang hjá okkur sambýliskornunum, skóli og svona. Mesta vandamálið er þrálát sprungin dekk á hjólinu mínu.

Það dettur inn próf á föstudag, mér finnst ég hræðilega lélegur að læra. Er samt ekki eins lélegur og bekkjarfélagi minn, Kani, sem næstum því grenjaði þegar hann bað mig um að lána sér glósurnar mínar. Af því hann sagðist vera gersamlega fallinn og ekkert gæti bjargað honum, ekki einu sinni að nota næstu 4 daga til að redda sér... skil ekki svona. En hvað er það annars að reyna að fá glósur annarra? Glósurnar mínar eru greinilega frábærar, mér fannst þær skítur þangað til hann rendi yfir þær. Ég hefði aldrei nennt að renna yfir glósur annarra... en nóg um neikvæðni.

Lífið er gott:)


20081002

332

332 kílómetrar af 500 komnir í hús, það er búin að vera mikil leti undanfarið.

20080820

Endurkoma í Kaupmannahöfn

Komin til baka á elliheimilið á Fogedgården, gamla fólkið mjög áhugasamt um ferðalög okkar í sumar. Maður fær tækifæri til að æfa dönskuna og ramba inná réttan skilning með stundum löngum samtölum.

Maður var kominn í góða rútínu eftir veturinn með sitt danska líf áður en við fórum eftir prófin til Íslands. Sjáiði bara hvað ég var danskur. Fékk þessar grifflur í hjólabúð á 25 danskar. Ætlaði að nota þær í ræktinni en vissi það alveg þegar ég keypti þær að ég myndi aldrei aldrei aldrei láta sjá mig í ræktinni með þessa viðbjóðslegu hanska.

Veit ekki alveg af hverju ég pósta þessari mynd á bloggið en mér finnst lesendur eigi skilið að sjá hana.

Fyrsta árlega 17. júní grillið var haldið hjá okkur í sumar. Anna og Óskar voru í heimsókn með Atla Dag. Hrönn og Jói komu með Viktoríu og Grétar ásamt Sabba, Kára og Sigríði. Íslenskt lambakjöt var á boðstólum ásamt dönskum pullum og öðru meðlæti.


Heima á Íslandi skelltum við í Sushi bita við mikinn fögnuð


Að sjálfssögðu gerðist margt annað en hver hefur tíma til að útlista það?

Rétt er að taka það fram að ég tók að sjálfssögðu góða bendingu úti á landi, í bústað afa og ömmu hennar Bryndísar. Sjá hér fyrir neðan.


Freydís og Sigga komu í heimsókn til Bryndísar eitt kvöldið og fiktuðu í hárinu á henni.


Millilentum á Kaupmannahöfn áður en við héldum til Ungverjalands. Borðuðum þetta einn daginn.


Afar ljúffengt, sérstaklega í hitakófinu sem var hérna í lok júlí. Ísbirnirnir héldu sig í vatninu yfir hádegið.





Sjáiði hvað við erum flott kóngafólk? Frederik og Marie hvað.

20080803

308/500

Ungverjaland á miðvikudaginn.

20080730

KOMST INN!!!

Ég á ekki til nógu stóran broskall fyrir þetta innlegg .. :-D

Tilbud om studieplads ved CBS 2008
Afslut sessionen

Bryndis Jonatansdottir

Du har sagt ja tak til en studieplads på uddannelsen BSc in Business Administration and Service Mgt.

Vi byder dig velkommen på Handelshøjskolen i København !

20080627

Ég náði!

Ég náði þýskuprófinu :D

veiveiveiveiveiveivei


Er komin til Íslands and I'm likingit

20080625

Komin í siðmenninguna

Loksins komin í mánaðardvöl á Íslandi.

Skemmtileg reynsla að hlusta á X-ið og heyra harða umræðu um efnahagsstjórn landsins, minnist þess ekki að hafa heyrt jafn fréttatengda umræðu á X-inu.

En það er kannski til marks um stemminguna.

20080619

17 júní, gestir og nýjar myndir!


Fengum góða vini til okkar í heimsókn í gær í tilefni þjóðhátíðardagsins, elduðum ekta íslenskt lambalæri og sátum fyrir utan, rosa kósý.
Síðan gistu Anna, Óskar og Atli Dagur ofurprins hjá okkur :)

Getið séð heil tvö ný albúm ef þið farið inn á Myndasíðan yngri hér til hægri !

Svo er ég búin í prófum á föstudag (á morgun), vei! :D

20080616

267 af 500

Sídasta prófid á morgun, svo er heimferd uppá Frón thar sem vid verdum i tæpan mánud.

Fyndid ad thad sé til annad ord yfir Ísland. Frón, hafdi ekki pælt i thessu ádur. Google skilar ekki neinni skýringu thegar ad thessu er leitad.

En vid erum jú Frónbúar alveg eins og vid erum Íslendingar.

Já prófid á morgun er um samskipti í félögum. Ég er ad undirbúa ræduna, en vard ad láta vita af gangi ródursins.

20080602

2 júní

Í dag er 2 júní og við Jón eigum 2ja ára afmæli:)

"Þau eiga afmæl'í dag, þau eiga afmæl'í dag!"

Veiii:D

...en Jón er á Íslandi , svo fögnuðurinn hefst ekki fyrr en á miðvikudag:(

20080529

Salamu!

Þetta þýðir Greetings! á Swahili:)

Er næstum búin í prófunum, á bara hlustun og munnlegt eftir í dönsku, svo ég ákvað að nýta tímann áður en ég færi heim í að læra Swahili.

Ég las nefninlega að það væru um 70 eða 80 milljón manns í Afríku sem tala Swahili, reyndar ekki allir sem fyrsta tungumál, en þetta átti víst að vera svar Afríkubúa við enskunni. Tungumálið varð til mest í strandbæjum þar sem mikið var um verslun við útlendinga þegar samskipta varð að sjálfsögðu þörf. Ef þið hafið áhuga á að læra meira um þetta hlýtur að vera eitthvað um þetta á netinu, sjálf las ég greinina í Politiken.

Ég fann sniðugt forrit á netinu sem hjálpar til við tungumálalærdóm, BYKI.com er með ókeypis tungumálaforrit fyrir helling af tungumálum, og þetta er mjög einfalt og þægilegt forrit, þar sem glósuspjöld eru notuð.

Hérna eru helstu orðin og orðatiltækin sem ég er búin að læra:
(mismunandi hvort þau eru með stórum eða litlum staf, skrifa bara eins og er í forritinu)

bwana = herra
bibi = frú
Salamu = Greetings!
Lala salama = góða nótt
Hujambo = hæ
Habari za asubuhi = good morning

Í forritinu lærir maður líka framburð, svo ef þið eruð áhugamenn um tungumál þá mæli ég eindregið með þessu:)

Kwaheri!
Bryndís

20080524

Junk Mail

Fékk þennan tölvupóst sendan í morgun. Gaman.

Hello ,

My Name is Miss.Cloudy Babingui from Rwanda in Africa presently residing in Dakar senegal. I was impressed seek for my soul mate, and also i like to establish a long lasting relationship with you. In addition,i will like you to reply me through my private email box(baby_clou@yahoo.ie) so that i will give you my picture and more about me.Thanks waiting to hear from you soonest. Love,

Miss Cloudy

20080515

Próffótur

Ligg uppi í sófa með fótinn uppi og er að læra fyrir próf.
Er að fara í þýskupróf og dönskupróf eftir helgi.
Ég veit að það er ekkert sérstaklega efektívt að reyna að læra liggjandi uppi í sófa, en ég eiginlega get ekkert það því gert.

Ég lenti nefninlega í því óhappi síðastliðinn sunnudag að snúa mig aftur.
Eins og einhverjir vita þá fór ég á hestbak í Ungverjalandi um páskana, hesturinn minn bilaðist og ég neyddist til að stökkva af honum á fullri ferð. Þetta var án efa versta lífsreynsla ævi minnar. Raunar vorum við 3 sem enduðum á jörðinni, frændi minn stökk líka og hestur kærustunnar hans henti henni af baki eftir að hún hafði barist hetjulega við að halda sér á baki. Sem betur fer slasaðist enginn, en ég lenti svo illa á fætinum að hann snérist illa.

Raunar snérist hann svo illa að þeir læknar sem ég hef hitt eða hafa séð myndir af honum höfðu sjaldan séð annað eins. Getið dæmt sjálf af myndinni, svona leit fóturinn út 5 dögum eftir óhappið:
Ég var komin í ágætis hlaupagír áður en við fórum til Ungverjalands og var því pirruð á að þurfa að bíða lengi með að byrja aftur, en fyrir svona tveimur vikum síðan byrjaði ég að geta hlaupið á hlaupabretti, þó ég væri ekki orðin alveg góð.
Því miður fór ég aðeins of hratt af stað. Ákvað síðasta sunnudag að þar sem veðrið væri svona gott ætlaði ég að hlaupa í Fælledparken í staðin fyrir á hlaupabretti inni.
Vegirnir í garðinum eru mjög ójafnir, svo þegar ég var að hlaupa inn á milli trjáa á einum stað þá lenti ég í smá holu og ...bamm...komin í jörðina.
Bólgnaði sem betur fer ekki jafn mikið upp, mest bara í kringum kúluna, en það var dáldið fyndið að það var eins og það væri golfbolti út úr fætinum mínum:)

Og þessvegna ligg ég uppi í sófa og er að læra, í stað þess að tildæmis sitja við borð og læra.

Tschüss!

20080511

Nýjar myndir!

Nýjar myndir frá Slóveníu ferðinni okkar:)

Inni á Myndasíðan yngri, linkur hér til hægri ---------->

Gaman á ströndinni


Hjóluðum með Sigríði, Degi, Þórunni og Ladda á Amagerstrand í dag, í 25°C, það var fullt af fólki á ströndinni. Dýfðum okkur í sjóinn og láum og spjölluðum yfir grilluðum pylsum. Ég er reyndar smá yfirsólaður en maður verður að redda sér Base Tan fyrir sumarið.