20080227

Ritgerð

Úff, rigerðin alveg að klárast.

Rosalega verður gott að vera búinn með þetta.

20080225

Óskarinn

Atli skildi ekkert í mér fyrir að vera að horfa á biðröð í sjónvarpinu um miðja nótt.



Svo ég er farinn að sofa.

Vi venter

Ég myndi ekki segja að við værum ekki óánægð með það að Óskarsverðlaunahátíðin er sýnd svona seint.

Geta þessir kanar ekki haft viðburði á kristilegum tímum?

20080224

Rugby

Það styttist í að við förum í alvöru leik í rugbyinu í stað þess að æfa og leika okkur.



Verst að ég er svo lélegur í að muna reglur, klikkaði iðulega á 3 sekúndna reglunni í körfunni. Hún er líka leiðinleg.

20080223

Kjúklingur

Bryndís er að elda meistarajkúlla, meðlætið er svo flókið ég nenni ekki að útskýra það.

Lífið er gott

20080221

Gufusoðið grænmeti

Ég eldaði kjúklingabringur með gufusoðnu grænmeti í fyrradag.

Átti mjög erfitt með að fá elsku Jón minn til að borða grænmetið sitt.

Endaði með að ég prófaði flugvélatrixið á hann.. og það virkaði!!! :-D

Hann er klárlega sætasti kærastinn í heiminum:)

Veikindaupdate:
Komin vika, er orðin heldur góð, en virðist ekki ætla að ná kvefinu úr mér...

20080220

Skýjað

Ef þú veist eitthvað um Reinhard Bendix ættiru að vita hvað ég er að gera núna.

Annars eru veikindin hægt og rólega að sefast í mér, þau verða reyndar í nokkra daga að maula en það verður að hafa það. Rækt bíður færis heilsu og hitaleysis.

20080219

Rop

Geri ekki annað á veikindanæturnar núna en að ropa.

Ropa ropa ropa

20080218

Við vorum þarna



Sumarið 2006, með 700.000 þúsund Þjóðverjum.

Deutsche Bahn AG

Dagurinn í dag var góður dagur, helsta minningin er mjög svipuð þessu

Achtung



Skelltum okkur til Þýskalands í dag. Tókum lestina, það var gaman, Þjóðverjar eru æði.



Hver veit nema maður taki skóla þar...

20080217

Þegar ég skráði mig inn

Sá ég að 39 manns vildu bæta okkur á vinalistann sinn.
1 vildi að ég spilaði póker.
14 vildu vita hvað ég myndi borga fyrir aðra vini.
2 Vampírur bitu mig.
4 skoruðu hátt á kvikmyndaskoðanakönnun.
7 Tögguðu okkur í albúmi.
3 skrifuðu á FunWall
4 skrifuðu á SuperWall
1 skrifaði á Wall
og Aggi pókaði mig
Daði á afmæli í dag.

Eitthvað lið breytti myndinni sinni.

Svona er lífið orðið, þetta Facebook líf.

Afmælisveisla + Gestir + Flensa

Það hefur gengið á með skemmtun og starfssemi síðustu dagana.

Við héldum uppá afmælið hjá Bryndísi með djammi og karíókí, myndir á Facebook hjá Sabba. Kannski mun maður setja myndir inn við tækifæri. Ég söng Vertigo og rústaði laginu, bókstaflega.

Halldór og Líney komu í heimsókn í vikunni, mjög gaman að hafa þau í heimsókn.

Kebab kvöld á Föstudaginn, kannski koma inn myndir bráðum.

Svo kom Flensan ég er brjálaður, myndir á leiðinni

Met

20:56 og 155 km eftir

20080209

Hlýtt og Snemmt vor

Það er byrjað að hitna aðeins og vora hér hjá Baununum. Fór út að hjóla áðan án trefils, ég hef ekki gert það frá því í okt. Vonandi helst þetta eitthvað frameftir

Það verða eflaust viðbrigði fyrir einhvern að það sé síhiti úti. Reyndar erum við ekki með svalir svo það hefur ekki reynt mikið á kæligetu Sjálands, ísskápurinn hefur séð um þetta fyrir mitt leyti.

Í kvöld stefnum við á veitingastað til að halda uppá afmæli Bryndísar. Vonandi fæst þýskur Paulainer

Bryndís snoðaði mig um daginn, svo nú er ég "gullfallegur" eins og hún segir það.

160 km eftir

Sæll Faðir

Ég hef syndgað, það eru 3 skipti frá síðustu Ræktarfærslu minni.

Fyrsta skiptið 23:27
Annað skiptið 22:59
Þriðja skiptið 21:49

40 km komnir í hús. Ef ég fer þrisvar á viku til 1. maí ætti þetta að takast.

20080208

Fødselsdag

I dag er det Bryndís fødselsdag!
Hurra! Hurra! Hurra!
Hun sikkert sig en gave får
som hun har ønsket sig i år
og dejlig chokolade med kage til.

Hvor smiler hun, hvor er hun glad
Hurra! Hurra! Hurra!
Men denne dag er også rar,
for hjemme venter mor og får
med dejlig chokolade med kage til.

Og når hun hjem fra skolen går,
Hurra! Hurra! Hurra!
Så skal hun hjem og holde fest,
og hvem der kommer med som gæst,
får dejlig chokolade med kage til.

Til slut vi råber højt i kor.
Hurra! Hurra! Hurra!
Gid Bryndís længe leve må
og sine ønsker opfyldt få -
og dejlig chokolade med kage til.

20080205

Íraksstríðið

Þegar Íraksstríðið byrjaði vissu allir að stríðið myndi klárast um sumarið. Fjölmiðlar sögðu það.

Það er enn í gangi, fann flotta síðu á netinu þar sem hægt er að skoða átakasvæði og helstu bardaga herja bandalagsins sem við vorum/erum í.

http://www.obleek.com/iraq/

Best að hafa hljóðið á.

Trúarbragðafræði

20080203

Tantalite

Fann æðislega heimasíðu, http://www.projectcensored.org/. Síða sem fjallar um hluti sem fréttafæribandið færir manni ekki.

Til dæmis er verið að tala um stríðið í kringum námuvinnslu Columbo-tantalite, málmur sem notaður er í öll helstu rafmagnstæki.

Í stuttu máli eru hinir og þessir vopnakallar sem hafa frá því rafmagnstækjaöldin hófst tekið yfir helstu námur á besta Columbo-tantalite svæði heimsins, Kongó. Svo selja þessir vopnakallar efnið til hrávöruframleiðanda eins og Cabot Corp.

Þeir selja það svo áfram til Nokia, Sony og allra annarra rafmagnstækjaframleiðenda.

Hvernig væri utan á kössunum fyrir allar rafmagnsvörur myndi standa "Varúð! Þetta tæki er framleitt úr hrávöru frá mið-afríku. Sú hrávara er sjaldgæf, óendurnýjanleg, hefur fjármagnað blóðugt stríð yfir yfirráðum námusvæða og hefur orsakað útrýmingu af dýrum sem voru í útrýmingarhættu."