20080511

Gaman á ströndinni


Hjóluðum með Sigríði, Degi, Þórunni og Ladda á Amagerstrand í dag, í 25°C, það var fullt af fólki á ströndinni. Dýfðum okkur í sjóinn og láum og spjölluðum yfir grilluðum pylsum. Ég er reyndar smá yfirsólaður en maður verður að redda sér Base Tan fyrir sumarið.